Þessi síða í ham fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréGera hlutverk.is að upphafssíðu
Velkomin á vef Blindravinnustofunnar

Nánar á www.blindravinnustofan.is 

Stuðningur til sjálfstæðis!

Blindravinnustofan er starfs- og starfsþjálfunarstaður blindra og sjónskertra einstaklinga, í eigu Blindrafélagsins.

Hún er með þjónustusamning við Vinnumálastofnun, sem verndaður vinnustaður og starfsþjálfunar- og hæfingarstaður.  Starfsmenn starfa við pökkun og merkingu á hreinlætisvörum sem síðan eru seldar í verslunum um allt land, við pökkun og merkingu hinna ýmsu hluta fyrir fyrirtæki og einstaklinga, og við skönnun og vinnslu efnis á rafrænu formi.

Blindravinnustofan var stofnuð, af blindu fólki, árið 1941 og verður því 70 ára árið 2011.

Helsta hlutverk hennar er að:

  • Vera vinnustaður þar sem blint og sjónskert fólk getur starfað tímabundið eða til framtíðar
  • Hæfa og endurhæfa blint og sjónskert fólk til ýmissa starfa
  • Bjóða viðskiptavinum sínum góðar vörur
  • Styrkja og hvetja blint og sjónskert fólk til dáða
  • Vera blindu og sjónskertu fólki stuðningur og hvatning vilji það komast út á hinn almenna vinnumarkað

Kjörorð Blindrafélagsins og Blindravinnustofunnar er fyrst og fremst; Stuðningur til sjálfstæðis!

Með því að kaupa vörur eða þjónustu Blindravinnustofunnar leggur þú þitt af mörkum til þess að styðja blint og sjónskert fólk til sjálfstæðis.

Logo Blindravinnustofunnar



 

Blindravinnustofan  -  Hamrahlíð 17  - 105  Reykjavík  - Sími 525  0025