Þessi síða í ham fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréGera hlutverk.is að upphafssíðu
Velkomin á vef Blindravinnustofunnar

Göngum hreint til verks!

Getum við orðið að liði í þínu fyrirtæki - getum við létt undir? Ef svo er þá léttir þitt fyrirtæki undir með okkur. Næg verkefni tryggja störf á vinnustofunni, aukin fjölbreytni gerir starfið ánægjulegra, ýtir undir meiri færni og þjálfun starfsmanna.

Blindravinnustofan býður:

  Pökkunarþjónustu   - Úrval ræstingaáhalda

Blindravinnustofan ehf. er verndaður vinnustaður í eign Blindrafélagsins og hefur það meginmarkmið að skapa blindum og sjónskertum störf. Að vera í vinnu er ekki sjálfsagt mál og því miður er það raunveruleikinn fyrir fjölda fólks. Að vera trúað fyrir verkefnum, eiga vináttu vinnufélaga og fá laun í vasann er ákaflega mikils virði. Það stuðlar að auknu sjálfstæði, sjálfstrausti og almennu heilbrigði.

Með aukinni sölu vara og þjónustu Blindravinnustofunnar myndast tækifæri til að fjölga störfum fyrir blinda og sjónskerta. Sem dæmi má nefna að í rekkum Blindravinnustofunnar í verslunum má finna á bilinu 60 - 90 vöruliði sem farið hafa í gegnum hendur blindra og sjónskertra. Blindravinnustofan hefur alla tíð lagt áherslu á góðar vörur, góða þjónustu og samkeppnishæf verð.

Við leggjum áherslu á að öll verkefni henti blindum og sjónskertum - okkar starf er að gera verkefnið þannig úr garði að það henti.

Gakktu hreint til verks.... 
                    veldu vörur frá Blindravinnustofunni gæðanna vegna...

 

Logo Blindravinnustofunnar

Örtrefjamoppa
Örtrefjahanski

Blindravinnustofan  -  Hamrahlíð 17  - 105  Reykjavík  - Sími 525  0025